Yfirlit um ársreikninga sókna árið 2011

14.11.2012

Ríkisendurskoðun hefur haft eftirlit með ársreikningum sókna frá og með árinu 1997. Eftirlit stofnunarinnar felst annars vegar í að innkalla reikninga og hins vegar í því að kanna hvort þeir séu tölulega réttir. Auk þessa eru ársreikningar sókna skráðir í gagnagrunn til að auðvelda eftirlit með skilum og aðra athugun á þeim. 

Samræmt reikningsform fyrir sóknir var samþykkt af Kirkjuráði á árinu 2004 og hefur það verið í gildi síðan.

Í árslok 2011 voru 273 sóknir starfandi. Í byrjun nóvember 2012 höfðu Ríkisendurskoðun borist ársreikningar frá 240 sóknum vegna ársins 2011. Ársreikningum 33 sókna hafði ekki verið skilað.

Yfirlit um ársreikninga sókna árið 2011 (pdf)

Mynd með færslu