Yfirlit um ársreikninga kirkjugarða 2010

18.01.2012

Ríkisendurskoðun hefur haft lögboðið eftirlit með ársreikningum kirkjugarða frá og með árinu 1993, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, og er kirkjugarðsstjórnum skylt að senda ársreikninga kirkjugarða til stofnunarinnar. Ársreikningum nýliðins árs á að skila fyrir 1. júní ár hvert.

Til að samræma sem best alla upplýsingagjöf lét Biskupsstofa, í samstarfi við Ríkisendurskoðun, gera sérstök eyðublöð fyrir ársreikninga kirkjugarða og er lögð áhersla á að þessi eyðublöð séu notuð.

Í hinum 12 prófastsdæmum landsins eru 243 kirkjugarðar sem skila eiga ársreikningum til Ríkisendurskoðunar. Í byrjun nóvember 2011 höfðu stofnuninni borist ársreikningar 209 kirkjugarða vegna ársins 2010.

Yfirlit um ársreikninga kirkjugarða 2010 (pdf)

Mynd með færslu