Yfirlit um ársreikninga kirkjugarða vegna ársins 2009

12.11.2010

Ríkisendurskoðun hefur haft lögboðið eftirlit með ársreikningum kirkjugarða frá og með árinu 1993, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga nr. 36/1993 um kirkjugarða, greftrun og líkbrennslu, og er kirkjugarðsstjórnum skylt að senda ársreikninga kirkjugarða til stofnunarinnar. Ársreikningum nýliðins árs á að skila fyrir 1. júní ár hvert. 

Til að samræma sem best alla upplýsingagjöf lét Biskupsstofa, í samstarfi við Ríkisendurskoðun, gera sérstök eyðublöð fyrir ársreikninga kirkjugarða og er lögð áhersla á að þessi eyðublöð séu notuð.  

Í hinum 12 prófastsdæmum landsins eru 243 kirkjugarðar sem skila eiga ársreikningum til Ríkisendurskoðunar. Í byrjun nóvember 2010 höfðu stofnuninni borist ársreikningar 211 kirkjugarða vegna ársins 2009.

Yfirlit um ársreikninga kirkjugarða vegna ársins 2009 (pdf)

Mynd með færslu