Framkvæmd fjárlaga 2009 og janúar til apríl 2010

29.06.2010

Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir framkvæmd fjárlaga árið 2009. Umfjöllunin byggist á ársreikningum og endurskoðunarbréfum stofnana og bráðabirgðaupplýsingum úr bókhaldskerfi ríkisins. Auk þess er í skýrslunni fjallað um framkvæmd fjárlaga á tímabilinu janúar til apríl 2010. Sú umfjöllun miðast við bráðabirgðaupplýsingar úr bókhaldskerfi ríkisins frá 1. júní sl. auk mánaðar‐ og ársfjórðungsyfirlita Fjársýslu ríkisins.

Framkvæmd fjárlaga 2009 og janúar til apríl 2010 (pdf)

Mynd með færslu