Framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætlanir 2008

15.04.2008

Hér er gerð grein fyrir fjárheimildum og gjöldum stofnana í A-hluta ríkissjóðs á árinu 2007. Allar upplýsingar fyrir það ár byggja á ársfjórðungsuppgjöri Fjársýslu ríkisins frá febrúar 2008 og öðrum upplýsingum Fjársýslunnar um millifærslur og launabætur til fjárlagaliða. Uppgjör Fjársýslunnar hefur ekki verið endurskoðað og er því aðeins til bráðabirgða. Það gefur þó eins rétta mynd og hægt er á þessum tímapunkti. Upplýsingar um sjóðstreymi og efnahag eru fengnar úr fjárreiðuyfirliti Fjársýslunnar fyrir desember 2007 og eru sömuleiðis til bráðabirgða.

Framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætlanir 2008 (pdf)

Mynd með færslu