28.09.2006
Tilgangurinn með þessum leiðbeiningum er að tryggja eftir föngum að mat á eignum og skuldum ríkisaðila sem breytt er í hlutafélög og sem Ríkisendurskoðun er falið að gera sérfræðiskýrslu um, sbr. 6. grein laga um hlutafélög nr. 2/1995, sé unnið með skipulegum og samræmdum hætti.
Leiðbeiningar þessar taka einkum til breytingar ríkisaðila í hlutafélag sem ætlunin er að verði áfram í eigu ríkisins. Þær taka hins vegar ekki til þess hvernig standa skuli að undirbúningi að sölu slíkra fyrirtækja til einkaaðila.