Sólheimar í Grímsnesi 1996-1999 -

13.05.2003

Sólheimar í Grímsnesi fá árlega fjárveitingu úr ríkissjóði til að standa undir þjónustu við fatlaða íbúa staðarins. Í þessari skýrslu er gerð grein fyrir því hvernig framlögum ríkisins á árunum 1996–1999 var ráðstafað og höfð hliðsjón af ákvæðum þjónustusamnings Sólheima og félagsmálaráðuneytisins frá 1996. Ekki er hins vegar lagt mat á það hvort sá þjónustusamningur hafi verið best til þess fallinn að mæta þörfum fatlaðra íbúa Sólheima eða hvort aðrar leiðir hefðu verið æskilegri. 

Sólheimar í Grímsnesi 1996-1999 - (pdf)

Mynd með færslu