Endurskoðun kirkjustofnana árið 1996

01.10.1997

Umfangsmikil endurskoðun á kirkjustofnunum var framkvæmd fyrir árin 1994 og 1995. Var í þeim skýrslum fundið að ýmsum atriðum og mælst til að úrbætur yrðu gerðar. Á árinu 1996 hefur skipulega verið unnið því að hrinda í framkvæmd þeim ábendingum sem gerðar hafa verið. Af þessum sökum hefur Ríkisendurskoðun ekki talið ástæðu til að leggja í jafn mikla vinnu við endurskoðun kirkjustofnana árið 1996 og fyrri ár. Endurskoðun fyrir árið 1996 hefur því fyrst og fremst beinst að því að sannreyna að fjárhæðir og upplýsingar í ársreikningum séu án verulegra annmarka.

Endurskoðun kirkjustofnana árið 1996 (pdf)

Mynd með færslu