02.06.1988
Í skýrslu þessari bendir Ríkisendurskoðun á atriði sem betur mega fara í skipulagi og rekstri Ríkisútvarpsins. Við þá athugun sem Ríkisendurskoðun hefur framkvæmt hjá Ríkisútvarpinu hefur komið í ljós að margir þættir í rekstri Ríkisútvarpsins eru framkvæmdir af fyllstu hagsýni. Ennfremur hefur að undanförnu verið unnið að endurbótum á ýmsum sviðum hjá Ríkisútvarpinu sem hafa og munu skila árangri.