Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og fasteignasjóður - endurskoðunarskýrsla 2020

20.12.2021

Ríkisendurskoðun hefur lokið endurskoðun ársreiknings Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga fyrir árið 2020. Einnig hefur stofnunin lokið við endurskoðun ársreiknings Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem er sérstök deild innan Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga skv. 13. gr. a. í lögum nr. 4/1995 um tekjustofna sveitarfélaga.

Ársreikningar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga voru síðast endurskoðaðir vegna ársins 2019.

Jöfnunarsjóður sveitarfélaga og fasteignasjóður - endurskoðunarskýrsla 2020 (pdf)

Mynd með færslu

Útdráttur skýrslu

Niðurstöður endurskoðunar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og Fasteignasjóðs Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga voru án athugasemda en nokkrum ábendingum um það sem betur má fara var komið á framfæri við umsjónarmann sjóðsins og Fjársýslu ríkisins sem annast færslu bókhalds og greiðsluþjónustu, um það sem betur má fara.