Koma þarf í veg fyrir kennaraskort

Almennt

27.02.2017

Stjórnvöld eru hvött til að grípa til aðgerða til að koma í veg fyrir aðsteðjandi kennaraskort á Íslandi.

Þetta kemur fram í nýrri stjórnsýsluúttekt Ríkisendurskoðunar: Kostnaður og skilvirkni kennaramenntunar - Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri.  Frá árinu 2009, þegar kennaranám var lengt úr þremur árum í fimm, hefur mikil fækkun verið á skráðum nemendum við kennaradeildir skólanna. Nú er svo komið að háskólarnir ná ekki að brautskrá nægilega marga kennara til að viðhalda eðlilegri nýliðun í stéttinni. Kennaradeildir Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri eru einnig hvattar til leita leiða til að laða nýnema í kennaranám og til þess að auka skilvirkni í kennaranámi.

Talið er að um 60% menntaðra leikskólakennara og um helmingur menntaðra grunnskólakennara séu við kennslustörf í leik- og grunnskólum landsins. Það bendir til að kennaraskortur verði ekki eingöngu leystur með fjölgun kennaranema heldur sé einnig mikilvægt að laða menntaða kennara til starfa og hvetja þá til að halda áfram störfum innan stéttarinnar.

Ekki hafa verið þróaðir opinberir mælikvarðar til að meta kostnað og skilvirkni háskólakennslu, þrátt fyrir hvatningu Ríkisendurskoðunar þar um og er mennta- og menningarmálaráðuneytið hvatt til að þróa slíka mælikvarða. Ef litið er til endurkomu- og brautskráningarhlutfalls kennaranema við skólana tvo á undanförnum árum virðist hlutfallið hærra hjá Háskólanum á Akureyri og telst hann því skilvirkari í starfi sínu en Háskóli Íslands. Kennaranám við Háskóla Íslands virðist á hinn bóginn heldur ódýrara en við Háskólann á Akureyri. Á árunum 2013–15 varði Háskóli Íslands að meðaltali um 74 færri vinnustundum og greiddi rúmlega 235 þús.kr. minna í laun við að mennta hvern brautskráðan kennaranema en Háskólinn á Akureyri.

Árið 2015 kostaði hver brautskráður nemandi, sem lauk  fimm ára kennsluréttindanámi á tilskildum námshraða, ríkissjóð að lágmarki um 4,3 m.kr. Raunkostnaður eykst þó vegna nemenda sem ljúka námi á lengri tíma og vegna þeirra sem hætta námi. Því telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að auka skilvirkni kennaradeildanna með því að draga úr brotthvarfi nemenda og auka námshraða þeirra.

Sjá nánar