Ekki þörf á að ítreka ábendingar um útvistun verkefna til Bændasamtakanna

Skýrsla til Alþingis

28.03.2014

Ríkisendurskoðun telur ekki ástæðu til að ítreka ábendingar sínar til stjórnvalda um útvistun verkefna til Bændasamtaka Íslands sem settar voru fram í skýrslu stofnunarinnar árið 2011. Tvær ábendingar af fimm hafa þó ekki enn komið að fullu til framkvæmda.

Ríkisendurskoðun mun því fylgjast með framvindu mála og aðhafast síðar ef ástæða þykir til.Alþingi og stjórnvöld hafa útvistað ýmsum stjórnsýsluverkefnum á sviði landbúnaðarmála til Bændasamtaka Íslands. Meðal annars taka samtökin ákvarðanir um opinberar greiðslur til bænda, annast útreikning þeirra og afgreiðslu. Einnig sinna samtökin ráðgjöf við stjórnvöld og fulltrúar þeirra sitja í nefndum sem taka ákvarðanir um landbúnaðarmál. Árið 2011 birti Ríkisendurskoðun skýrslu um útvistun opinberra verkefna til Bændasamtakanna þar sem fjórum ábendingum var beint til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins (nú atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti):

  • Óæskilegt væri að Bændasamtökin önnuðust bæði framkvæmd stjórnsýsluverkefna og eftirlit með henni. Ráðuneytið ætti að hafa frumkvæði að endurskoðun fyrirkomulagsins. Þá væri mikilvægt að ráðuneytið hefði ávallt óheftan aðgang að þeim gögnum um íslenskan landbúnað sem samtökin byggju yfir vegna umræddra verkefna.
  • Ráðuneytið þyrfti að fylgjast betur með hvort ráðstöfun ríkisframlaga til landbúnaðar væri í samræmi við lög, reglur og samninga og skilaði þeim árangri sem til væri ætlast.
  • Óæskilegt væri að Bændasamtökin önnuðust gerð hagskýrslna um landbúnað enda yrði óhlutdrægni slíkra skýrslna að vera hafin yfir vafa.
  • Samningar stjórnvalda við Bændasamtökin þyrftu að kveða skýrt á um hvort og þá að hve miklu leyti fjárreiðulög, stjórnsýslulög, upplýsingalög og lög um opinber innkaup giltu um verkefnin.

Í nýrri eftirfylgniskýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að nú þremur árum síðar er unnið að flutningi verkefna frá Bændasamtökunum til stofnana ráðuneytisins og gerðar hafa verið ráðstafanir til að tryggja aðgengi þess að gögnum. Því telur Ríkisendurskoðun ekki ástæðu til að ítreka fyrstu ábendinguna að svo stöddu en mun fylgjast með framvindu málsins og mögulega aðhafast síðar ef þurfa þykir. Þá kemur fram í skýrslunni að ráðuneytið hafi að eigin sögn bætt eftirlit sitt með framkvæmd verkefnanna, hagskýrslugerð sé nú í höndum Hagstofu Íslands og Matvælastofnunar og skýrt sé kveðið á um lögbundnar skyldur Bændasamtakanna í nýlegum samingum ráðuneytisins við þau. Því telur Ríkisendurskoðun að brugðist hafi verið við hinum þremur ábendingunum þannig að ekki sé þörf á að ítreka þær en hvetur jafnframt ráðuneytið til að efla enn frekar eftirlit sitt og eftirfylgni með framkvæmd verkefnanna.

Í skýrslu sinni árið 2011 benti Ríkisendurskoðun á að Matvælastofnun væri samkvæmt lögum falin ýmis stjórnsýsla á sviði landbúnaðarmála. Stofnunin hefði að hluta til útvistað þessum verkefnum til Bændasamtakanna með samningi. Að mati Ríkisendurskoðunar væri æskilegt að Matvælastofnun annaðist sjálf þessi verkefni. Nú þremur árum síðar er staðan óbreytt hvað þetta varðar en sem fyrr greinir er unnið að flutningi verkefna frá Bændasamtökunum til stofnana ráðuneytisins og er þar m.a. um að ræða verkefni á ábyrgðarsviði Matvælastofnunar. Því telur Ríkisendurskoðun ekki ástæðu til að ítreka ábendinguna en mun fylgjast með framvindu málsins og mögulega aðhafast síðar ef þörf krefur.

Sjá nánar