Hafa ekki brugðist með fullnægjandi hætti við ábendingum um innkaupamál

Skýrsla til Alþingis

04.11.2013

Ráðuneytin hafa ekki brugðist með fullnægjandi hætti við átta ábendingum Ríkisendurskoðunar frá 2010 um innkaupamál. Þær eru því ítrekaðar í nýrri eftirfylgniskýrslu stofnunarinnar.

Árið 2010 beindi Ríkisendurskoðun samtals átta ábendingum til ráðuneytanna sem lutu að fylgni þeirra við innkaupastefnu ríkisins og fleiri þáttum innkaupamála. Tveimur ábendinganna var beint til allra ráðuneytanna, sem þá voru tólf, en sex ábendingum var eingöngu beint til fjármálaráðuneytisins. Öll ráðuneytin voru hvött til að auka vægi innkaupamála í starfseminni og beita innkaupastefnu sinni sem virku stjórntæki. Fjármálaráðuneytið var sérstaklega hvatt til að efla kynningu á og eftirlit með innkaupastefnu ríkisins sem og árangursmat á þessu sviði. Þá var ráðuneytið hvatt til að beita sér fyrir bættri skráningu innkaupa í bókhaldi ríkisins, samræma reglur um notkun rammasamninga, marka skýra stefnu um rafræn innkaup og framkvæmdaáætlun á því sviði og setja siðareglur um opinber innkaup.

Nú þremur árum síðar hefur margt áunnist í þessum efnum, að mati Ríkisendurskoðunar, og unnið er að ýmsum verkefnum sem standa til bóta. Engu að síður telur stofnunin að almennt hafi ráðuneytin enn ekki brugðist með fullnægjandi hætti við þeim ábendingum sem beint var til þeirra. Því eru þær allar ítrekaðar í nýrri eftirfylgniskýrslu stofnunarinnar.

Að mati Ríkisendurskoðunar veldur áhyggjum hve lítið hefur miðað við að hrinda í framkvæmd mörgum þeirra áforma sem tíunduð eru í innkaupastefnu ríkisins frá árinu 2002. Stefnan hefur ekki verið endurskoðuð og uppfærð né hefur verið unnin stefna um rafræn innkaup. Þá hafa innkaupastefnur ráðuneytanna sjálfra almennt ekki verið endurskoðaðar en sumar þeirra eru komnar til ára sinna.

Sjá nánar