Stjórnvöld meti hvort enn sé þörf fyrir SRA

Skýrsla til Alþingis

26.03.2013

Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld eigi að meta hvort enn sé þörf fyrir Skrifstofu rannsóknastofnana atvinnuveganna (SRA) og mögulegan ávinning af því að flytja verkefni hennar annað. Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuvegnanna (SRA) annast bókhalds- og greiðsluþjónustu fyrir 21 stofnun, verkefni og sjóð á vegum ríkisins. Stærstu stofnanirnar eru Hafrannsóknastofnun, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís). Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að vegna breytinga í umhverfi SRA og rannsóknastofnana atvinnuveganna er starfsemi skrifstofunnar nú aðeins að litlu leyti í samræmi við reglugerðir sem um hana gilda en þær eru frá áttunda áratug síðustu aldar. Þá kemur fram að aðilum sem SRA þjónustar hefur nýlega verið fjölgað án þess að fjárveitingar til skrifstofunnar væru hækkaðar. Enn fremur er bent á að vaxtatekjur af bankareikningum aðila sem skrifstofan þjónustar renni að hluta til SRA en ekki þeirra sjálfra og gagnrýnir Ríkisendurskoðun það.

SRA færir bókhald þeirra aðila sem hún þjónustar að stærstum hluta í bókhaldskerfi sem byggt er á svonefndum Navision-hugbúnaði. Ríkisstofnanir færa almennt bókhald sitt í fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins (Orra) sem byggt er á svonefndum Oracle-hugbúnaði. Reglulega þarf að færa gögn úr bókhaldskerfi SRA inn í Orra. Í skýrslunni kemur fram að margvíslegt óhagræði fylgi þessu fyrirkomulagi auk þess sem það valdi því að ekki sé unnt að nálgast heildstæðar og greinanlegar upplýsingar um ríkisreksturinn á hverjum tíma. Á síðasta ári könnuðu SRA, Hafrannsóknastofnun, Rannís og Nýsköpunarmiðstöð Íslands möguleika á að færa bókhald sitt yfir í Orra en ákváðu síðar að fjárfesta frekar í uppfærslu á Navision þegar í ljós kom að Orri uppfyllti ekki allar kröfur þeirra. Ríkisendurskoðun beinir því til fjármála- og efnahagsráðuneytisins að það tryggi í samvinnu við Advania hf., sölu- og þjónustuaðila Orra, að kerfið geti þjónað þörfum allra ríkisstofnana. Gangi þetta eftir ber að mati Ríkisendurskoðunar að kanna möguleika á því að færa bókhald þeirra aðila sem SRA þjónustar nú alfarið yfir í Orra.

Ríkisendurskoðun hvetur atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið til að yfirfara verkefni SRA og endurmeta þörf fyrir skrifstofuna, m.a. með tilliti til þeirra breytinga sem orðið hafa á umhverfi rannsóknastofnana atvinnuveganna undanfarna áratugi. Ríkisendurskoðun áætlar að ef SRA verði lögð niður muni árlega sparast a.m.k. 20 ̶ 25 milljónir króna. Verði niðurstaðan sú að enn sé þörf fyrir SRA telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að lög og reglugerðir um starfsemi hennar verði endurskoðuð.

Sjá nánar