Endurnýja verður útrunna rekstrar- og þjónustusamninga

Skýrsla til Alþingis

14.06.2011

28% allra skuldbindandi rekstrar- og þjónustusamninga sem ráðuneytin hafa gert eru útrunnir. Samtals nema skuldbindingar ríkisins vegna þeirra um 33 milljörðum króna á tímabilinu 2011–14.Á þessu ári munu samtals tæplega 40 milljarðar króna renna úr ríkissjóði til ýmissa verkefna sem samtök, einakaðilar eða sveitarfélög sinna samkvæmt svokölluðum skuldbindandi rekstrar- og þjónustusamningum við ráðuneytin. Af samtals 116 slíkum samningum eru 33 nú útrunnir, þ.e. um 28%, þótt haldið sé áfram að starfa og greiða samkvæmt þeim. Um er að ræða samninga sem heyra undir fjögur ráðuneyti: mennta- og menningarmála-, innanríkis-, velferðar- og utanríkisráðuneyti. Samningar annarra ráðuneyta eru enn í gildi. Alls nema skuldbindingar ríkisins vegna útrunninna samninga um 33 milljörðum króna á tímabilinu 2011–14.

Í nýrri ábendingu Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin telur óviðunandi að unnið sé samkvæmt útrunnum rekstrar- og þjónustusamningum. Mikilvægt sé að þeir verði endurnýjaðir sem fyrst og eldri samningar gerðir upp. Þá þurfi ráðuneytin að tryggja að Ríkisendurskoðun berist ávallt afrit rekstrar- og þjónustusamninga og ársreikninga sem tengjast þeim.

Mennta- og menningarmálaráðuneyti sker sig úr vegna fjölda útrunninna samninga en 26 af samtals 44 samningum þess eru útrunnir eða tæp 60%. Samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu vinnur það nú að endurnýjun þessara samninga.

Sjá nánar