Framkvæmd þjónustusamnings gagnrýnd

Skýrsla til Alþingis

01.10.2010

Ofgreidd ríkisframlög til Hraðbrautar ehf., sem rekur Menntaskólann Hraðbraut, námu samtals 192 m.kr. á sjö ára tímabili. Félagið greiddi eigendum arð án þess að hafa í raun bolmagn til þess. Fjárhagslegt uppgjör hefur aldrei farið fram þrátt fyrir skýrt ákvæði í þjónustusamningi.Í júní sl. bað mennta- og menningarmálaráðuneytið Ríkisendurskoðun um að kanna framkvæmd þjónustusamnings ráðuneytisins við Hraðbraut ehf. Í nýrri greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að á tímabilinu 2003–2009 reyndust nemendur skólans um fimmtungi færri en áætlanir samningsins gerðu ráð fyrir. Framlög ríkisins voru hins vegar miðuð við þessar áætlanir og fékk skólinn samtals 192 m.kr. umfram það sem honum bar á tímabilinu.

Samkvæmt skýru ákvæði í þjónustusamningnum skal árlega fara fram uppgjör þar sem áætlun um nemendafjölda og framlög er borin saman við rauntölur. Í greinargerðinni segir að slíkt uppgjör hafi aldrei farið fram og er það gagnrýnt. Ljóst er að skólinn hefði ekki fengið ofgreidd framlög ef umræddu samningsákvæði hefði verið framfylgt.

Fram kemur að á tímabilinu 2003–2009 hafi arðgreiðslur skólans til eigenda hans numið samtals 82 m.kr. Ríkisendurskoðun telur að skólinn hafi í raun ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að greiða þennan arð. Þá kemur fram að lán skólans til aðila tengdra eigendum hans hafi numið samtals 50 m.kr. í árslok 2009. Að mati Ríkisendurskoðunar eru þessar lánveitingar óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans. Stofnunin telur óvíst að fjárhagslegar forsendur séu fyrir áframhaldandi rekstri hans.

Mennta- og menningarmálaráðuneytið mun ekki fara fram á að skólinn endurgreiði ofgreidd framlög á tímabilinu 2004–2006 en þau námu rúmlega 126 m.kr. Að mati Ríkisendurskoðunar hefur ráðuneytið ekki heimild til að gefa eftir þessa skuld. Þess má geta að á umræddu tímabili nam hagnaður skólans um 57 m.kr. og arðgreiðslur til eigenda um 24 m.kr. Lán skólans til aðila tengdra eigendum hans námu 16 m.kr. í árslok 2006.

Að lokum skal þess getið að úttekt Ríkisendurskoðunar náði eingöngu til fjárhagslegra þátta og ekki til faglegs starfs Hraðbrautar.

Sjá nánar