Bæta þarf eftirlit með framkvæmd búvörusamninga

Skýrsla til Alþingis

03.09.2010

Hluti greiðslna ríkisins til bænda var rangfærður í bókhaldi ríkisins. Auka þarf gagnsæi greiðslna vegna búvörusamninga. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld gert nokkra samninga við hagsmunasamtök bænda um fjárhagslegan stuðning ríkisins við landbúnað. Um er að ræða styrki til sauðfjárbænda, kúabænda og garðyrkjubænda. Bændasamtök Íslands hafa séð um að greiða bændum út styrkina og annast aðra umsýslu samninganna.

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að greiðslur til sauðfjár- og garðyrkjubænda hafi að mestu verið í samræmi við ákvæði samninga og síðari breytingar á þeim. Þá kemur fram að hluti greiðslna til sauðfjár-, garðyrkju- og kúabænda hafi verið rangt færður í bókhaldi ríkisins og átelur Ríkisendurskoðun landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið fyrir þetta. Í kjölfar athugasemda stofnunarinnar hefur ráðuneytið nú breytt verklagi sínu til að koma í veg fyrir villur af þessu tagi.

Að mati Ríkisendurskoðunar þarf ráðuneytið að sinna betur eftirliti með framkvæmd búvörusamninga og greiðslum vegna þeirra. Þá þarf ráðuneytið að auka gagnsæi útreikninga sem búa að baki þessum greiðslum svo að þingmenn, eftirlitsaðilar og almenningur eigi auðveldara með að glöggva sig á þeim. Loks telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að gerðir verði formlegir samningar um þóknanir sem ríkið greiðir Bændasamtökum Íslands fyrir umsýslu samninganna.
Þess má geta að skýrslan er sú fyrri af tveimur sem gefnar verða út og birta niðurstöður athugunar Ríkisendurskoðunar á framkvæmd búvörusamninga.

Sjá nánar