Heildargjöld innan fjárheimilda árið 2009

Skýrsla til Alþingis

29.06.2010

Gjöld A-hluta ríkissjóðs voru innan fjárheimilda á árinu 2009. Áform um tekjuöflun gengu eftir og gott betur. Gjöldin voru einnig innan heimilda á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010.Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um framkvæmd fjárlaga kemur fram að heildargjöld A-hluta ríkissjóðs árið 2009 hafi verið 12 ma.kr. innan fjárheimilda eða samtals 579 ma.kr. Megi m.a. rekja það til þess að kostnaður við endurreisn bankakerfisins hafi reynst minni en áætlað var.

Bent er á að þótt gjöld hafi verið innan fjárheimilda hafi þau engu að síður verið 23 ma.kr. umfram fjárlög ársins. Þar voru veittar heimildir til gjalda upp á 556 ma.kr. en með fjáraukalögum bættust við 13 ma.kr. og fjárheimildir fluttar frá fyrra ári námu 22 ma.kr. Í heild námu fjárheimildir ársins því 591 ma.kr.

Fram kemur að áform um tekjuöflun ríkisins á árinu 2009 hafi gengið eftir og gott betur. Í fjárlögum hafi verið gert ráð fyrir að tekjur A-hluta ríkissjóðs yrðu 402 ma.kr. Með fjáraukalögum hafi sú áætlun hækkað í 417 ma.kr. Í reynd hafi tekjurnar hins vegar orðið mun hærri eða 439 ma.kr. og megi einkum rekja það til skattahækkana sem ákveðnar voru um mitt ár.

Á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 urðu tekjur ríkisins um 2 ma.kr. lægri en áætlað var og gjöldin 7 ma.kr. lægri en fjárheimildir. Það tókst því að halda rekstri ríkissjóðs innan fjárheimilda á tímabilinu.

Í skýrslunni er fjallað um stofnanir sem glímt hafa við rekstrarvanda. Færri stofnanir voru með verulegan uppsafnaðan halla í árslok 2009 en á sama tíma undanfarin ár. Í árslok 2009 var 21 stofnun með uppsafnaðan halla umfram 4% af fjárheimild ársins en undanfarin ár hefur fjöldinn verið á bilinu 50–70. Af þessari 21 voru 16 reknar umfram heimildir á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010. Ríkisendurskoðun telur áríðandi að tekið verði á rekstrarvanda stofnana í eitt skipti fyrir öll.

Dæmi eru um að stofnanir skili ekki rekstraráætlunum til ráðuneytanna á tilsettum tíma. Ríkisendurskoðun telur að í slíkum tilvikum eigi viðkomandi ráðuneyti að láta gera áætlun og leggja fyrir forstöðumann að fylgja henni.

Sjá nánar