Ekki gerð athugasemd við undirbúning sameiningar

Skýrsla til Alþingis

15.06.2010

Ríkisendurskoðun gerir ekki athugasemd við undirbúning sameiningar skattumdæma landsins. Stofnunin bendir á mikilvægi þess að stutt verði við starfsfólk og að stefnumótun verði lokið.Um síðustu áramót voru embætti ríkisskattstjóra og níu skattstjóra víðs vegar um landið sameinuð í eitt. Þar með var landið gert að einu skattumdæmi.

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að stofnunin gerir ekki athugasemd við undirbúning sameiningarinnar. Hún hafi byggt á skýrum faglegum og fjárhagslegum markmiðum. Þá telur stofnunin að kostnaður vegna hennar muni rúmast innan fjárheimilda. Enn fremur liggi fyrir skýr verk- og tímaáætlun um hana.

Ríkisendurskoðun bendir á að mikilvægt sé að stutt verði við starfsfólk í því breytingaferli sem framundan er hjá nýju sameinuðu embætti. Einnig sé brýnt að langtímastefnumótun fyrir embættið verði lokið innan þeirra tímamarka sem sett hafa verið. Þá sé mikilvægt að samrunaáætlunin verði endurmetin reglulega.
Þess má geta að athugunin er liður í stærra verkefni Ríkisendurskoðunar sem miðar að því að meta hvernig áform ríkisstjórnarinnar um að endurskipuleggja opinbera þjónustu ganga eftir. Fyrri úttektir Ríkisendurskoðunar hafa sýnt að undirbúningi og framkvæmd sameiningar stofnana hefur oft verið ábótavant.

Sjá nánar