Árangur stjórnsýsluúttekta frá 2006

Skýrsla til Alþingis

02.03.2010

Rúmlega þrjár af hverjum fjórum ábendingum í stjórnsýsluúttektum Ríkisendurskoðunar frá árinu 2006 höfðu verið framkvæmdar að fullu eða hluta þremur árum síðar. Ríkisendurskoðun leitast við að meta viðbrögð stjórnvalda og stofnana við þeim ábendingum sem fram koma í stjórnsýsluúttektum stofnunarinnar. Þetta er gert með sérstökum eftirfylgniúttektum þremur árum eftir að ábendingarnar voru settar fram. Úttektir þessar eru liður í því að meta árangur stjórnsýsluendurskoðunar.

Árið 2009 var þremur úttektum frá árinu 2006 fylgt eftir með framangreindum hætti. Af samtals 29 ábendingum taldi Ríkisendurskoðun að 22 (76%) hefðu verið framkvæmdar að fullu eða hluta en 7 (24%) hefðu ekki verið framkvæmdar. Til samanburðar má nefna að um 88% ábendinga í úttektum ársins 2005 höfðu verið framkvæmdar þremur árum síðar.

Árið 2006 birti Ríkisendurskoðun niðurstöður stjórnsýsluúttekta á embætti ríkislögreglustjóra (RLS), Umhverfisstofnun (UST) og Verkmenntaskóla Austurlands (VA).

Sjá nánar