Skýrsla um fjárreiður sjálfseignarstofnana sem ekki stunda atvinnurekstur

Skýrsla til Alþingis

05.05.2009

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjárreiður sjálfseignarstofnana sem ekki stunda atvinnurekstur kemur fram að nokkur misbrestur er á því að slíkir aðilar sendi stofnuninni ársreikninga sína eins og lög kveða á um. Samkvæmt lögum um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá ber öllum þeim aðilum sem lögin ná til að senda ársreikninga sína til Ríkisendurskoðunar. Hér er um að ræða sjálfseignarstofnanir sem ekki stunda atvinnurekstur, einkum ýmsa styrktar- og minningarsjóði og góðgerðarstofnanir. Ríkisendurskoðun heldur skrá yfir þessa aðila og hefur eftirlit með því að ársreikningar þeirra skili sér. Hafi reikningur ekki borist í eitt ár eða hann reynst ófullkominn að einhverju leyti getur Ríkisendurskoðun vísað málinu til sýslumanns sem eftir atvikum getur falið lögreglu að rannsaka fjárreiður viðkomandi aðila.

Í skýrslunni kemur fram að í lok mars sl. höfðu 477 sjálfseignarstofnanir af alls 694 sem féllu undir fyrrnefnd lög árið 2007 skilað ársreikningum fyrir það ár. Tæplega þriðjungur eða 217 höfðu ekki skilað og hefur Sýslumaðurinn á Sauðárkróki, sem annast framkvæmd laganna, nú mál nokkurra þeirra til skoðunar.
Starfsemi allmargra sjálfseignarstofnana hefur legið niðri um nokkurra ára skeið. Í samræmi við heimildir í lögum áformar Ríkisendurskoðun, í samráði við sýslumanninn á Sauðárkróki, að beita sér fyrir því að þessar stofnanir verði sameinaðar öðrum með skyld markmið eða lagðar niður.

Heildareignir sjálfseignarstofnana sem skiluðu reikningum fyrir árið 2007 námu samtals 33,3 ma.kr. í árslok. Skuldir þeirra námu samtals 12,0 ma.kr. og var eigið fé því samtals 21,3 ma.kr. Heildartekjur námu samtals 9,4 ma.kr. og gjöld u.þ.b. sömu fjárhæð. Af þessum stofnunum höfðu 97 yfir 5,0 m.kr. í tekjur á árinu og 91 átti meira en 30,0 m.kr. í eigin fé.

Með skýrslunni fylgir yfirlit um helstu stærðir í ársreikningum sjálfseignarstofnana 2007 sem og skrá yfir allar slíkar stofnanir sem Ríkisendurskoðun annast nú eftirlit með.

Sjá nánar