Framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætlanir 2008

Skýrsla til Alþingis

15.04.2008

Ríkisendurskoðun gagnrýnir enn einu sinni misbresti á framkvæmd fjárlaga og virðingarleysi fyrir bindandi fyrirmælum þeirra. Þetta birtist bæði í hallarekstri og ónýttum fjárheimildum fjölmargra stofnana. Sérstaklega er minnt á ábyrgð ráðuneyta í þessu efni og bent á nauðsyn þess að hún verði gerð skýrari í lögum og reglum. Skil stofnana á ársáætlunum hafa hins vegar batnað verulega.

Á undanförnum tveimur áratugum hefur Ríkisendurskoðun ítrekað bent á ýmsa misbresti á framkvæmd fjárlaga, virðingarleysi fyrir bindandi fyrirmælum þeirra og almennt agaleysi í rekstri fjölmargra stofnana. Í þessu samhengi hefur stofnunin m.a. vakið athygli á misræmi í ákvörðunum fjárveitingarvaldsins og framkvæmdavaldsins, þ.e. að fjárveitingarvaldið ákvarði umfang opinberrar þjónustu með fjárlögum hvers árs en forstöðumenn og ráðuneyti taki sér síðan iðulega vald til að auka umfang hennar umfram lögbundnar heimildir.

Í skýrslu Ríkisendurskoðunar „Framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætlanir 2008“ er bent á að þessar og aðrar athugasemdir stofnunarinnar um framkvæmd fjárlaga hafi litlu skilað. Samkvæmt bráðabirgðauppgjöri Fjársýslunnar var um fjórðungur fjárlagaliða með halla í árslok 2007. Í heild nam hann um 5,8 ma.kr., að fram¬lagsliðum slepptum, og jókst um 2,4 ma.kr. frá 2006. Þá áttu um 70% allra fjárlagaliða ónýttar fjárheimildir í árslok 2007. Slíkar uppsafnaðar heimildir námu alls 21,2 ma.kr., að fram¬lagsliðum slepptum, og jukust um 1,2 ma.kr. frá 2006.

Ríkisendurskoðun vekur sérstaka athygli á því að ekki hefur verið tekið nægilega föstum tökum á því þegar stofnanir lenda í rekstrarvanda. Af þrettán stofnunum sem fóru meira en 4% umfram fjárheimildir árið 2006 og Ríkisendurskoðun fjallaði sérstaklega um í skýrslu sinni um framkvæmd fjárlaga 2006 voru tólf enn með halla umfram þessi mörk í árslok 2007. Þetta er algjörlega ólíðandi. Síendurtekin brot gegn lögum og reglum um framkvæmd fjárlaga og aðgerðaleysi ráðuneyta vegna þeirra sýna einnig að ábyrgðin er ekki að öllu leyti hjá forstöðumönnum stofnana. Mikilvægt er því að ákvæði um ábyrgð ráðuneyta á fjárreiðum ríkisstofnana verði gerð afdráttarlausari í gildandi lögum og reglum. Þá er hvatt til þess að ónýttar fjárheimildir, sem ekki stendur til að nota að fullu á nýju ári, verði felldar niður í lokafjárlögum 2007.

Í skýrslu sinni bendir Ríkisendurskoðun einnig á nauðsyn þess að áætla rekstrarkostnað stofnana til lengri tíma en nú er gert og styrkja þannig fjárlagaferlið. Skil stofnana á ársáætlunum hafa hins vegar batnað verulega frá því að þau voru síðast könnuð árið 2003. Þó er enn nokkur misbrestur í þessum efnum og í raun óásættanlegt að ein af hverjum sex stofnunum starfi án rekstraráætlana a.m.k. fyrstu tvo mánuði ársins.

Sjá nánar