Niðurstöður eftirfylgni með fjórum stjórnsýsluúttektum

Almennt

15.09.2026

Nýlega kynnti Ríkisendurskoðun niðurstöður eftirfylgni með fjórum stjórnsýsluúttektum frá árunum 2022–2023 fyrir stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Samtals voru settar fram 25 ábendingar í skýrslum úttektanna og þar af telur Ríkisendurskoðun að komið hafi verið að fullu til móts við 9 ábendingar og 15 að hluta. Að því er varðar eina ábendingu telur embættið að viðbrögð hafi verið óviðunandi.

Um er að ræða eftirtaldar skýrslur:

Úrvinnslusjóður – stjórnsýsluúttekt (2022)
Samkeppniseftirlitið – samrunaeftirlit og árangur (2022)
Geðheilbrigðisþjónusta – stefna, skipulag, kostnaður og árangur (2022)
Sinfóníuhljómsveit Íslands – stjórnsýsluúttekt (2023)

Á myndinni hér að neðan má sjá samantekt um viðbrögð við ábendingum skýrslnanna.

Upplýsingar um inntak ábendinganna og nánari útlistun á viðbrögðunum við þeim má nálgast í nýjum eftirfylgniskýrslum embættisins:

Eftirfylgni: Úrvinnslusjóður 
Eftirfylgni: Samkeppniseftirlitið 
Eftirfylgni: Geðheilbrigðisþjónusta 
Eftirfylgni: Sinfóníuhljómsveit Íslands 

Ríkisendurskoðun fylgir eftir niðurstöðum stjórnsýsluúttekta sinna með skipulegum hætti, annars vegar 6–12 mánuðum og hins vegar u.þ.b. þremur árum eftir að skýrslur eru birtar. Tilgangur slíkrar eftirfylgni er að kanna hvort og þá hvernig brugðist hefur verið við ábendingum embættisins.