Endurskoðun ríkisreiknings 2003

19.11.2004

Á árinu 2003 var ríkissjóður rekinn með 6,1 ma.kr. halla sem er 2,0 ma.kr. minni halli en var árið 2002 þegar hann nam 8,1 ma.kr. Tekjur jukust því hlutfallslega meira en gjöld á árinu 2003.

Tekjur ríkissjóðs námu 274,6 ma.kr. sem er 15,4 ma.kr. eða tæp 6% aukning frá fyrra ári, en gjöld námu 280,7 ma.kr. sem er 13,4 ma.kr. eða 5% aukning frá fyrra ári.

Endurskoðun ríkisreiknings 2003 (pdf)

Mynd með færslu